Go to the page content
Verkfæri | 5 Lágm. lestur

BMI REIKNIVÉL: Reiknaðu líkamsþyngdarstuðulinn hér

Líkamsþyngdarstuðull (Body Mass Index, BMI) er tala, sem er reiknuð út frá hæð og þyngd. Þetta er ekki nákvæmur útreikningur á prósentuhlutfalli líkamsfitu, en þetta er auðveld leið til að ákveða hvar þyngdin þín liggur með tilliti til heilbrigðis.

Þú getur notað líkamsþyngdarstuðulinn sem upphafspunkt til þess að ræða við lækninn um þyngd, heilsuna þína og meðferðarmöguleika.

Mikilvægt er að leggja áherslu á að líkamsþyngdarstuðull er gagnleg mæling fyrir flesta einstaklinga 18 ára og eldri, en engu að síður er þetta einungis mat sem ekki tekur tillit til aldurs, kynþáttar, kyns eða líkamsbyggingar.

Reiknaðu út þitt BMI

cm
ft
in
kg
st
lb

Líkamsþyngdarstuðull (BMI):

__

Líkamsþyngdarflokkur:

__

Undir eðlilegri þyngd

Ef þú ert undir eðlilegri þyngd getur það verið merki um að þú borðir ekki nægilega mikið eða að um veikindi sé að ræða. Ef þú ert undir kjörþyngd skaltu hafa samband við heimilislækninn þinn til að fá nánara mat.

Eðlileg þyngd

Mælt er með því að þú haldir þyngdinni á þessu bili.

Forstig offitu

* Hugtakið ‚forstig offitu‘ var áður flokkað sem ‚ofþyngd‘ af Alþjóðlegu heilbrigðismálastofnuninni (WHO)

Einstaklingar sem falla í þennan flokk geta átt á hættu að þróa með sér offitu. Þeir geta einnig átt á hættu að fá önnur heilsufarsvandamál, eða að þau heilsufarsvandamál sem eru til staðar verði verri. Mælt er með því að þú ráðfærir þig við lækni sem hefur sérfræðimenntun í meðferð offitu. Fyrir fólk sem fellur í flokkinn ‚forstig offitu‘ eru 2 ráðleggingar í evrópskum og bandarískum klínískum leiðbeiningum varðandi meðferð offitu hjá fullorðnum.

Ráðleggingar fyrir einstaklinga með líkamsþyngdarstuðul á bilinu 25,0 til 29,9 sem ekki eru með heilsufarsvandamál tengd þyngd (þ.e.a.s. háan blóðþrýsting eða hátt kólesteról), eru að koma í veg fyrir frekari þyngdaraukningu með hollum mat og aukinni líkamlegri hreyfingu.

Fyrir einstaklinga með líkamsþyngdarstuðul á bilinu 27 til 29,0 sem eru með heilsufarsvandamál tengd þyngd, eru ráðleggingarnar að ná þyngdartapi með samsettri meðferð sem felst í lífsstílsbreytingum og lyfjum við offitu til að bæta heilsuna og auka lífsgæðin.

Offita I

Einstaklingar sem eru með líkamsþyngdarstuðul 30 eða hærri, geta verið með offitu, en offita er skilgreind sem óhófleg fitusöfnun sem getur skaðað heilsuna. Í dag viðurkenna margar heilbrigðisstofnanir offitu sem langvinnan sjúkdóm, sem þó er hægt að meðhöndla.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og aðrar heilbrigðisstofnanir skipta offitu í þrjá flokka:

Flokkun offitu

 BMI

Flokkur I

 30,0–34,9

Flokkur II

 35,0–39,9

Flokkur III

 Yfir 40

Flokkunin eftir líkamsþyngdarstuðli er byggð á þeim áhrifum sem óhófleg líkamsfita hefur á heilbrigði einstaklingsins, lífslíkur og hættu á fylgikvillum. Í takt við hækkun líkamsþyngdarstuðuls aukast líkurnar á ákveðnum sjúkdómum.

Mælt er með því að einstaklingar með líkamsþyngdarstuðul 30 eða hærri ráðfæri sig við lækni sem hefur sérfræðimenntun í meðferð offitu, til greiningar, áhættumats og meðferðar offitu og fylgikvilla offitu.

Markmiðið með því að meðhöndla og veita meðferð við offitu er ekki bara þyngdartap, heldur að bæta heilsuna og draga úr hættu á öðrum heilsufarsvandamálum. Þyngdartap og viðhald þyngdartaps sem er 5 prósent eða meira af líkamsþyngdinni getur aukið almenna vellíðan og á sama tíma minnkað hættu á fylgikvillum offitunnar.

Til eru margir vísindalega viðurkenndir meðferðarmöguleikar við offitu sem hægt er að ráðleggja með tilliti til þarfa einstaklingsins, heilsufars hans og mögulegra fylgikvilla offitunnar. Samsett meðferð getur falið í sér eftirfarandi valmöguleika**:

* Offituaðgerð er almennt íhuguð fyrir einstaklinga með líkamsþyngdarstuðul yfir 35 sem eru með fylgikvilla tengda þyngdinni. Slík aðgerð er einnig íhuguð fyrir einstaklinga með líkamsþyngdarstuðul sem er 40 eða hærri.

** Fyrirvari um ábyrgð: Þessar upplýsingar koma ekki í stað ráðgjafar læknis. Ef þú ert með spurningar varðandi heilsufar þitt átt þú að leita til læknis eða annarra viðurkenndra heilbrigðisstarfsmanna.

Offita II

Einstaklingar sem eru með líkamsþyngdarstuðul 30 eða hærri, geta verið með offitu, en offita er skilgreind sem óhófleg fitusöfnun sem getur skaðað heilsuna. Í dag viðurkenna margar heilbrigðisstofnanir offitu sem langvinnan sjúkdóm, sem þó er hægt að meðhöndla.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og aðrar heilbrigðisstofnanir skipta offitu í þrjá flokka:

Flokkun offitu

 BMI

Flokkur I

 30,0–34,9

Flokkur II

 35,0–39,9

Flokkur III

 Yfir 40

Flokkunin eftir líkamsþyngdarstuðli er byggð á þeim áhrifum sem óhófleg líkamsfita hefur á heilbrigði einstaklingsins, lífslíkur og hættu á fylgikvillum. Í takt við hækkun líkamsþyngdarstuðuls aukast líkurnar á ákveðnum sjúkdómum.

Mælt er með því að einstaklingar með líkamsþyngdarstuðul 30 eða hærri ráðfæri sig við lækni sem hefur sérfræðimenntun í meðferð offitu, til greiningar, áhættumats og meðferðar offitu og fylgikvilla offitu.

Markmiðið með því að meðhöndla og veita meðferð við offitu er ekki bara þyngdartap, heldur að bæta heilsuna og minnka hættuna á öðrum heilsufarsvandamálum. Þyngdartap og viðhald þyngdartaps sem er 5 prósent eða meira af líkamsþyngdinni getur aukið almenna vellíðan og á sama tíma minnkað hættu á fylgikvillum offitunnar.

Til eru margir vísindalega viðurkenndir meðferðarmöguleikar við offitu sem hægt er að ráðleggja með tilliti til þess sem hver einstaklingur þarfnast, heilsufars hans og mögulegra fylgikvilla offitunnar. Samsett meðferð getur falið í sér eftirfarandi valmöguleika**:

Offita III

@

A link with your BMI result has been sent to the email address.
An error has occured. The email wasn't sent.

Lestu meira um meðhöndlun offitu og meðferðarmöguleika hér

Heimildir
  • World Health Organization (Verdenssundhedsorganisationen). Obesity and overweight. Fact sheet 2018 : https://www.who.int/news-room/fact-sheets/detail/obesity-and-overweight [tilgået juli 2019].
  • Bray G et al. Obesity: a chronic relapsing progressive disease process. A position statement of the World Obesity Federation. Obesity Reviews 2017; 18:715–723.
  • U.S. Department of Health and Human Services Food and Drug Administration Center for Drug Evaluation and Research (CDER). Guidance for Industry Developing Products for Weight Management 2007.
  • Obesity Canada. Obesity in Canada. https://obesitycanada.ca/obesity-in-Canada/ [Tilgået juli 2019].
  • EASO. Milan Declaration: A Call to Action On Obesity. https://easo.org/2015-milan-declaration-a-call-to-action-on-obesity/ [Tilgået juli 2019].
  • American Medical Association. Annual Meeting: Resolutions 2012.
  • World Health Organization (Verdenssundhedsorganisationen). Body mass index - BMI: http://www.euro.who.int/en/health-topics/disease-prevention/nutrition/a-healthy-lifestyle/body-mass-index-bmi [Tilgået juli 2019].
  • Wadden TA et al. Intensive Behavioral Therapy for Obesity Combined with Liraglutide 3.0 mg: A Randomized Controlled Trial. Obesity 2019; 27:75-86.
  • World Health Organization (Verdenssundhedsorganisationen). Body mass index - BMI: http://www.euro.who.int/en/health-topics/disease-prevention/nutrition/a-healthy-lifestyle/body-mass-index-bmi [Tilgået juli 2019].
  • National Health and Medical Research Council. Clinical practice guidelines for the management of overweight and obesity in adults, adolescents and children in Australia 2013.
  • Yumuk V et al. European Guidelines for Obesity Management in Adults. Obesity Facts 2015; 8:402-424.

Tengdar greinar